RSS veita

Vorönn 2012

Gleðilegt nýtt ár!
Kennsla hefst að nýju á vorönn, mánudaginn 9. janúar nk.
Sjáumst kát!

jólatónleikar

ATH: Jólatónleikar sem áttu að vera miðvikudaginn 14. desember falla niður vegna veikinda.

Nemendur Helgu Kvam halda jólatónfund í tónlistarskólanum
miðvikudaginn 14. desember kl 18:00.

Skóladagatal 2011-2012

Skóladagatalið fyrir skólaárið 2011-2012 má sækja hér.

Kennsla hefst skv stundaskrá mánudaginn 5. september.

Innritun fyrir skólaárið 2011-2012

Innritun nemenda í Tónlistarskóla Svalbarðsstrandar
skólaárið 2011-2012

Þriðjudaginn 23. ágúst kl 15:00 – 18:00
Miðvikudaginn 24. ágúst kl 15:00 – 18:00
Fimmtudaginn 25. ágúst kl 15:00 -18:00
í tónlistarstofu í Valsárskóla , gengið inn að sunnan.

Rétt til náms í Tónlistarskólanum hafa allir grunn- og framhaldsskólanemendur með lögheimili í Svalbarðsstrandarhreppi.

Boðið er upp á heilt/hálft nám (1 klst á viku/ 30 mín á viku)
og kennt er á;
píanó/hljómborð
gítar/rafgítar
rafbassa
harmonikku
þverflautu
klarinett/saxófón
slagverk
söngur/raddbeiting

NÝTT: Tónleikur, hóptímar 2x30mín pr viku þar sem ýmis hljóðfæri verða prófuð, hægt að vera með sama hljóðfærið eða skipta, þjálfun í grunnatriðum tónlistarnáms. Ætlað byrjendum.

Ef ekki verður hægt að anna öllum umsóknum verður myndaður biðlisti.
Fullorðnum er bent á að hægt er að sækja einkanám hjá kennurum Tónlistarskólans.

Vortónleikar

Posted on

Vortónleikar Tónlistarskóla Svalbarðsstrandar verða

miðvikudaginn 11. maí nk kl 18:00 í Svalbarðskirkju.

Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.

Síðasti kennsludagur á vorönn er föstudagurinn 13. maí.

Námskeiðavika

Til að fagna degi tónlistarskólanna nk laugardag býður Tónlistarskóli Svalbarðsstrandar upp á helling af ókeypis örnámskeiðum tengdum tónlist. Námskeiðin eru opin öllum og kosta ekki krónu.

MÁNUDAGUR 21. febrúar
16:30-17:00 Músíksmiðja, námskeið fyrir 3-5 ára börn
…Hrynur, hreyfing og laglínur. Kennari Helga Kvam

17:15-19:00 Tónfræði fyrir fullorðna
Grunnur í nótnalestri. Kennari Helga Kvam

ÞRIÐJUDAGUR 22. febrúar
15:00 Bíósýning, The Commitments
(allir mega taka með popp og gos og nammi)

17:00-18:00 Gítarnámskeið fyrir alla, konur og karla, á öllum aldri. Námskeiðið er tvisvar klukkutími, seinni tíminn á föstudag 25. febrúar
Kennari Andri Kristinsson

MIÐVIKUDAGUR 23. febrúar
17:00-19:00 Tónist og ung börn
Námskeið um tónlistarstarf og tónlistarsköpun með ungum börnum. Kennari Helga Kvam

FIMMTUDAGUR 24. febrúar
13:30-16:00 Opið hús í tónlistarskólanum
Allir velkomnir að koma og prófa hljóðfæri, skoða, fá sér kaffibolla, spila lög, spyrja og hvað sem ykkur dettur í hug.

FÖSTUDAGUR 25. febrúar
13:30 Rennslis æfing fyrir tónlistarnemendur einungis

16:00-17:00 Hittarar í nýjum búningi
Hlustun og greining, skoðun/hlustun á hvernig lög eru klædd upp í nýjan búning. Kennari Andri Kristinsson

17:00-18:00 Gítarnámskeið (seinni tími)

LAUGARDAGUR 26. febrúar
DAGUR TÓNLISTARSKÓLANNA
12:00 Tónleikar á sal Valsárskóla.
Fram koma nemendur tónlistarskólans í einleik og samspili og spila þekkt og minna þekkt lög. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.

Gleðileg jól

Við óskum öllum nemendum okkar, foreldrum,

forráðamönnum og öðrum velunnurum

gleðilegrar jólahátíðar og gæfuríks komandi árs.
-

Kennsla hefst á nýju ári mánudaginn 10. janúar nk og er sá dagur fyrsti kennsludagur vorannar.

Jólatónleikar

Jólatónleikar Tónlistarskólans
miðvikudaginn 15. desember kl 18:00 í Svalbarðskirkju.
Nemendur koma fram í einleik og samspili,
byrjendur sem lengra komnir.

Jólatónleikar Gítarhljómsveitar Tónlistarskólans
laugardaginn 18. desember kl 20:00 í Svalbarðskirkju
Rólegt og notalegt rétt fyrir jólin.

Aðgangur er ókeypis á tónleikana og allir velkomnir.

Kær kveðja frá nemendum og kennurum Tónlistarskóla Svalbarðsstrandar

miðvikudagur 24. nóvember

Við viljum minna á að full kennsla er í Tónlistarskólanum miðvikudaginn 24. nóvember.

Tónlistarskólinn hefur eigið skóladagatal og fylgir ekki starfsdögum grunnskólans.
Vinsamlegast hringið í Tónlistarskólann í síma 462 3127

ef nemendur komast ekki af einhverjum ástæðum í tíma sína þann dag.

Miðannarmat

Miðannarmat fer fram hjá öllum nemendum Tónlistarskólans þessa og næstu viku, 8. nóv- 19. nóv.

Miðannarmat felur í sér að nemandi leikur 2 lög og kennari metur hvernig til tókst með tilliti til hraða, lipurðar, réttra nótna, líkamsstöðu og fleiri grunnatriða. Einnig tekur matið á hvernig nemandinn hefur stundað námið heima fyrir þ.e. hvernig nemendur koma undirbúnir í kennslustundir. Eftir miðannarmat er gefin skrifleg umsögn um það sem vel var gert og það sem þarf að laga.

 

Bæði nemendur og foreldrar eru hvattir til að kynna sér handbók Tónlistarskólans og skoða vel heimasíðuna, þar er hægt að finna ýmsan fróðleik er snýr að heimaæfingum nemenda og ástundun, samskiptaleiðir heimila við Tónlistarskólann, ýmislegt um námið og skólann og margt fleira.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.