Innritun nemenda í Tónlistarskóla Svalbarðsstrandar
skólaárið 2011-2012
Þriðjudaginn 23. ágúst kl 15:00 – 18:00
Miðvikudaginn 24. ágúst kl 15:00 – 18:00
Fimmtudaginn 25. ágúst kl 15:00 -18:00
í tónlistarstofu í Valsárskóla , gengið inn að sunnan.
Rétt til náms í Tónlistarskólanum hafa allir grunn- og framhaldsskólanemendur með lögheimili í Svalbarðsstrandarhreppi.
Boðið er upp á heilt/hálft nám (1 klst á viku/ 30 mín á viku)
og kennt er á;
píanó/hljómborð
gítar/rafgítar
rafbassa
harmonikku
þverflautu
klarinett/saxófón
slagverk
söngur/raddbeiting
NÝTT: Tónleikur, hóptímar 2x30mín pr viku þar sem ýmis hljóðfæri verða prófuð, hægt að vera með sama hljóðfærið eða skipta, þjálfun í grunnatriðum tónlistarnáms. Ætlað byrjendum.
Ef ekki verður hægt að anna öllum umsóknum verður myndaður biðlisti.
Fullorðnum er bent á að hægt er að sækja einkanám hjá kennurum Tónlistarskólans.